Grunnnámskeið í fjallahjólreiðum var haldið dagana 2. – 5. október. Að þessu sinni var nemendahópnum skipt í tvennt, en helmingur hópsins fór á jökul meðan hinir æfðu fjallahjólreiðar. Leiðbeinendur á námskeiðinu voru Guðmundur Markússon, Sigfús Ragnar Sigfússon og Sólveig Sveinbjörnsdóttir aðstoðaði. Markmið námskeiðsins var að byggja góðan grunn í fjallahjólreiðum og að nemendur væru öryggir til að fara í auðveldar fjallahjólaferðir á eigin vegum. Námskeiðið var haldið á Iceland Bike Farm nánar tiltekið í Mörtungu 2 í námunda við Kirkjubæjarklaustur.
Við byrjuðum fyrsta daginn á að fara yfir fjallahjól og hvað þarf að hafa í huga þegar verið er að máta og velja hjól og hvernig á að stilla dempara, bremsur, sætispóst og fleira. Síðan var farið í að máta hjól fyrir alla og finna réttar stærðir, stilla dempara og bremsur meðal annars. Þaðan lá leiðin út og farið var yfir undirstöðuatriði í fjallhjólreiðum. Hjólað var í heimahögum Iceland Bike farm og gekk það mjög vel.
Á laugardeginum var byrjað inni og farið yfir ferðalög á fjallahjólum, hvað þarf að hafa í bakpokanum og hvernig er gott að klæða sig. Ferðinni var svo heitið uppá heiði eins og það er kallað og æfðum við grunn stöður og tækni æfingar á hjólunum í gegnum mismunandi landslag og stíga. Einnig stoppuðum við á pump tracki eins og það er kallað sem að er í landi Iceland Bike Farm. Nemendur nýttu tæknina sem þau höfðu lært til að hjóla miserfiða kafla af leiðinni. Þegar líða tók á daginn var svo hjólað seinni hluta leiðarinnar á fullu „gasi“ og endað aftur í Mörtungu sem var mjög hressandi eftir miklar æfingar.
Sunnudagurinn var svo farið í heilsdags fjallahjólaferð. Safnað var í bíla og keyrt á þremur breyttum jeppum áleiðis inní Laka, eða rétt innan við Fagrafoss. Þaðan lá svo leiðinni eftir gömlum slóðum í átt að landi Mörtungu 2. Eftir að hjólað hafði verið í dágóðastund upp á við er svo komið á land Iceland Bike Farm og þá var skemmtileg ferð framundan niður flotta slóða sem hafa verið búnir til úr gömlum kindagötum og tileinkaðir fjallahjólreiðum. Leiðin er mjög falleg og falleg gljúfur og fossar sem einkenna leiðina í bland við litríkt heiðalandslag sem að var einkar litríkt núna í haustlitum.
Seinasta daginn var svo farið yfir hjólaviðgerðir og undirstöðuatriði í þeim. Meðal annars lærðu nemendru að skipta um dekk og að viðhalda hjólinu svo að búnaðurinn sé alltaf í toppstandi
Námskeiðslok voru með hefðbundnu sniði, búnaður var flokkaður og yfirfarinn, námskeiðið rýnt til gangs, spurningum svarðað og ráðleggingar fyrir framhaldið gefnar. Námskeiðið fór mjög vel fram og hlökkum við til að sjá hópinn halda áfram að vaxa og dafna. Við þökkum kærlega fyrir okkur. Líkt og áður er myndir eftir @skulipalmason á instagram
Sólveig Sveinbjörnsdóttir