framhaldsnám-nam


Skipulag framhaldsnáms

Framhaldsnám fjallamennskunáms FAS er sérhæft nám í fjallamennsku og leiðsögn sem skipulagt er sem fjögra anna nám. Náminu er ætlað að auka hæfni og þekkingu nemenda til að ferðast um fjalllendi og óbyggðir á Íslandi. Nemendur verða að hafa lokið grunnnámi í fjallamennskunámi FAS og get því einungis nemendur sem hafa lokið grunnnáminu sótt um framhaldsnám

Fjallamennskunám FAS er kennt í fjarnámi og verklegir áfangar kenndir jafnt og þétt yfir önnina í 4-7 daga í senn.

Réttindi

Námið veitir nemendur réttindi innan Félags íslenskra fjallaleiðsögumanna (AIMG). Nemendur ljúka AIMG jöklaleiðsögn 2 og fjallgönguleiðsögn 1.
Einnig fara nemendur á námskeiðið Vettvangs hjálp í óbyggðum frá Landsbjörg.

119142371_10157913483893512_4096113854084155288_o
1-1

Kostnaður

Skráningargjald í fjallamennskunám FAS kostar 6000 kr. á önn. Auk þess greiða nemendur fyrir gistingu, ferðalög og persónulegan búnað ef nemendur eiga ekki þann búnað sem ætlast er til að þeir eigi.



Búnaður

Nemendur þurfa að eiga persónulegan búnað og lista yfir þann búnað er hægt að finna hér á síðunni undir “Búnaður”. Skólinn útvegar tæknilegan búnað, svo sem tjöld, jökla og klifurbúnað, fjallahjól, skíði og kayak svo eitthvað sé nefnt.

118765665_10157885680373512_3164241695626950443_o
118927790_10157892634793512_6306091336691442614_o

Gisting

Nemendum stendur til boða að bóka gistingu í gegnum skólann meðan á ferðum stendur og getur sá kostnaður verið breytilegur eftir fjölda nemenda hverju sinni. Mikið er gist í tjöld í ferðum og er kostnaður við það yfirleitt lítill eða enginn.

Mikilvæg atriði

  • Nemendur skuldbinda sig að taka alla áfanga á hverri önn.
  • Ef nemandi hættir í áfanga, verður nemandi sjálfkrafa skráður úr náminu.
  • Ef nemandi hættir í námi eftir að hafa lokið FYHJ3ÓB05, AIMJ4FR05, AIMF3GR04, þarf viðkomandi að greiða fullt verð samkvæmt verðskrá AIMG og Landsbjörg fyrir námskeiðin.
  • Hætti nemandi í námi hefur hann ekki forgang í fjallamennskunám á næsta skólaári.
  • AIMG áfangar í framhaldsnámi krefjast þess að nemendur hafi uppfyllt forkröfur AIMG til að taka þau námskeið.
  • Í framhaldsnámi eru VINS3JÖ10 og EIVE3FO05 ætlaðir til þess að uppfylla þessi skilyrði.

118768039_10157885679483512_8924952891019263349_o
118767439_10157885690323512_1990638082665060931_o

Stúdentspróf

Hægt er að ljúka stúdentsprófi á kjörnámsbraut í FAS með fjallamennsku sem sérhæfingu. Einnig er hægt að ljúka framhaldskólaprófi með fjallamennsku sem sérhæfingu.