Áfangar náms í Jöklaleiðsögn

Vettvangsáfangar í náminu eru 14, af þeim eru fjórir val áfangar þar sem nemendur velja tvo af fjórum áföngum. Vettvangsáfangar eru kenndir úti í náttúru Íslands á 4 – 7 dögum. Eftir eðli áfanganna sem og árstíma, er gist í tjöldum eða í gistingu sem nemendur sjá um að skipuleggja sjálfir.  Bóklegir áfangar eru fjórir og eru kenndir í fjarnámi.

Í áfanganum klettaklifur og   línuvinna  er lögð áhersla á nauðsynlegan grunn í línuvinnu til að stunda klettaklifur utandyra.   Þá er almennri línuvinnu blandað við klettaklifrið, s.s. sig, línuklifur, bygging akkera og meðhöndlun sérhæfðs klifurbúnaðar.   Námið er vettvangsnám þar sem farið er í ferðir úti í náttúrunni þar sem tekist er á við raunaðstæður.  Áhersla er lögð á öryggisatriði og fagleg vinnubrögð ásamt   virðingu fyrir félögum og náttúru. Námið fer fram á   Suðausturlandi  á klettaklifursvæði. Gert er ráð fyrir útivist og líkamlegum æfingum alla daga.  

Í áfanganum rötun og útivist er lögð áhersla á skipulag og undirbúning gönguferða í óbyggðum, notkun rötunartækja, gerð leiðarkorta, útbúnað til bakpokaferða, leiðsögn, tjaldbúðalíf og að ferðast án ummerkja (e. leave no trace). Námið er vettvangsnám þar sem farið er í lengri gönguferð með allt á bakinu í óbyggðum og tekist á við raunaðstæður. Áhersla er á mikilvægi tíma- og hópastjórnunar. Náttúrutúlkun er einnig áhersluatriði og að nemendur miðli þekkingu sinni af umhverfinu til hópsins. 

Áfanginn Skriðjöklar, fer fram á   skriðjöklum    á  Suðausturlandi.   Megináherslan er á ferðalög á skriðjöklum    ásamt tilheyrandi tæknilegri línuvinnu. Þar má nefna byggingu akkera í ís, sig og línuklifur,   hífingar    og sprungubjörgun. Í áfanganum þjálfast nemendur einnig í ísklifri og broddafærni    í krefjandi landslagi. Áfanginn miðar að því að undirbúa nemendur fyrir ferðir á eigin vegum í hópi jafningja á skriðjökla.   Námið er vettvangsnám þar sem farið er í ferðir úti í náttúrunni þar sem tekist er á við raunaðstæður.  

 

Áfanginn Kajaksiglingar fer fram á sjókajak og miðar að því að þjálfa nemendur í ferðalögum á kajak í miðmunandi umhverfi. Nemandi þjálfast í að taka ákvarðanir miðað við eigið líkamsástand, staðhætti og aðstæður. Nemendur þjálfast í að nota öryggisbúnað í kajakferðum og útbúa raunhæfar ferðaáætlanir fyrir styttri kajakferðir. 

Áfanginn Snjóflóðagrunnur og skíðamennska er fimm daga námskeið sem fer fram á Tröllaskaga og byggir breiðan sterkan grunn í snjóflóðafræðum. Farið er yfir öll grunnhugtök snjóflóðafræða, hvernig landslag hefur áhrif á snjóflóðahættu, hvernig má nýta snjóflóða- og veðurspár til þess að undirbúa fjallaferðir, félagabjörgun úr snjóflóði, hvernig mannlegi þátturinn hefur áhrif á ákvarðanatöku fólks í krefjandi aðstæðum og alhliða skipulag fjallaferða með tilliti til áhættuþátta í fjalllendi að vetrarlagi. 

Auk snjóflóðafræðanna fer fram skíðakennsla en námskeiðið fer fram á skíðasvæði þar sem nemendur fá tækifæri til þess að bæta skíðatækni sína innan og utan brauta undir handleiðslu kennara.

Þetta skemmtilega valnámskið byggir ofan á grunninn sem fenginn var á snjóflóðanámskeiðinu og nýta nemendur sér þá þekkingu til þess að skipuleggja ferðir og fara á fjallaskíði. Nemendur læra uppgöngutækni, leiðarval, landslagslestur og mat á hættu í snjóflóðalandslagi. 

Nemendur byggja sterkan grunn í fjallaskíðamennsku og öðlast tæki og tól til þess að færa fjallaskíðamennskuna á næsta stig.

AIMG jöklaleiðsögn 1 er fjögurra daga námskeið og mat sem fer fram á skriðjöklum á  Suðausturlandi. Farið er yfir helstu atriði jöklaleiðsagnar svo sem leiðarval, sprungubjörgun, ísklifur, samskipti við gesti, náttúrutúlkun og hópstjórn.  

Standist nemandi námskeiðið hefur hann réttindi til að  starfa undir merkjum AIMG á skriðjökli sem AIMG Jöklaleiðsögunemi (e. AIMG  glacier  guide  trainee) að sumarlagi. 

Í áfanganum er farið yfir grunn í hájöklaferðamennsku en áfanginn fer fram í fjölbreyttu fjallalandslagi. Farið er yfir helstu atriði hájöklaferða; leiðarval, gerð leiðarkorta, rötun, félagabjörgun úr sprungu, uppsetningu á línu til göngu, fjarskipti og hópstjórn. Lögð er áhersla á meðvitund og virkar umræður um snjóaðstæður.  Þá er tjaldlíf í snjó þjálfað með tveggja til þriggja nátta ferð í raunaðstæður þar sem atriði eins og skjólveggir,  tjaldgryfja, eldamennska, svefn, fyrirkomulag og samstarf í tjaldbúðum er þjálfað. Áfanginn miðar að því að þjálfa nemendur í að ferðast í hópi jafningja á hájöklum.

Áfanginn lokaferð er lokapróf í leiðsögn. Nemendur leiða gesti í fjögurra daga gönguferð um óbyggðir og bera þeir ábyrgð á öllu skipulagi, samskipti við gesti og leiðsögn. Nemendur leiða einnig samnemendur og kennara í hájöklalandslagi og sýna tæknilega færni á skriðjökli eða í klettaklifri. Áfanginn miðar að því að snerta á öllum kennsluatriðum námsbrautarinnar en þau eru   rötun, öryggi á fjöllum, tjaldlíf, samskipti við gesti,   náttúrutúlkun og tæknileg línuvinna.  

Haustönn
ÁfangiLýsandi heiti
FJSK4JÖ06Fjallaferðir og skipulag (bóklegt)
FYHJ4LB01Fyrsta hjálp grunnur
FYHJ4FF01Fyrsta hjálp framhald
RÖÚT3JÖ05Rötun og útivist
SKJÖ4JÖ03Skriðjöklar
VEJÖ3JÖ05Hagnýt veður- og jöklafræði (bóklegt)
KLÍN3JÖ05Klettar og línuvinna
FHJÓ4JÖ02Fjallahjólreiðar (val)
KASI4JÖ02Kajaksiglingar (val)
 

Vorönn 

ÁfangiLýsandi heiti
ÞJHE4JÖ02Þjálfun og heilsa fyrir leiðsögumenn (bóklegt)
VEFM4JÖ04Vetrarferðamennska
SNJÓ4JÖ03Snjóflóðagrunnur og skíðamennska
HÁJÖ4JÖ04Hájöklaferðamennska I
FJHÓ4JÖ05Fjallaferðir og hópastjórnun (bóklegt)
AIMR4JÖ03AIMG jöklaleiðsögn 1
FJAM4JÖ05Lokaferð
KLIF4JÖ02Klettaklifur (val)
SKÍG4JÖ02Grunnur í fjallaskíðamennsku (val)