Rötun með snjallsíma

Fer fram yfir tvö skipti: kvöldið 26. febrúar og fyrir hádegi 28. febrúar

30.000 kr.

Á þessu stutta og hnitmiðað námskeiði læra nemendur um notkun snjallsíma, smá forrita og áttavita fyrir hverskonar rötun og leiðarskipulag í útivist. Snjallsíminn nýtist vel sem GPS tæki og með símaforritum eins og Gaia GPS og Avenza Maps hafa notendur aðgang að kortagrunnum um handhægum tólum til að skipuleggja hverskonar útivistarævintýri. 

Snjallsími og áttaviti er allt sem þarf til að rata – jafnvel í dimmustu þoku.

Námskeiðið annarsvegar 3 tímar í kennslu á síma/tölvu (kvöld) og 3 timar í verklega kennslu utanhúss (morgun um helgi).

Staðsetning: Námskeiðið er haldið á Höfuðborgarsvæðinu.

26. febrúar – Kvöld: Farið í „bóklegan“ hluta innanhúss. U.þ.b. 3 tímar.

28. febrúar – Dagur: Hálfur dagur (morgun) við léttar æfingar utanhúss með áttavita og snjalltæki.

Allt útivistarfólk er velkomið á þetta námskeið og allir sem á einhvern hátt þurfa að nýta rötun eða skipuleggja leiðarval á korti geta haft gaman af.

Símtæki nýtist illa til leiðsagnar á tækjum eins og vélsleðum og fjórhjólum en grunnatriðin við notkun á GPS tækjum sem henta er sú sama. Forrit eins og Gaia GPS geta nýst mjög vel við skipulag og gerð ferla fyrir venjuleg GPS tæki.

Fjallaskóli Íslands getur einnig stillt upp einka-námskeiðum fyrir vinahópa.

Snjalltæki með appinu Gaia GPS er nauðsynlegt. Ekki er nauðsynlegt að vera með greidda áskrift. 

Viðeigandi fatnaður fyrir utanhúss-hlutann.

Skráning

Vinsamlegast fyllið inn alla reitina svo skráningin teljist gild. Athugið að frekari upplýsingar um námskeiðið berast í tölvupósti þegar nær dregur.

Til þess að senda kröfu á heimabanka.