Ísklifur 2027
Dagsetningar óákveðnar
Opið fyrir skráningar
75.000 kr.
Ísklifurnámskeiðið okkar er helgarnámskeið fyrir þau sem vilja kynnast ísklifri, læra að stunda íþróttina með öryggi að leiðarljósi og fá leiðbeiningar um hvernig best sé að byrja.
Á námskeiðinu verður lögð áhersla á klifurtækni, línuvinnu og tryggingar og margt fleira.
Skráðu þig til þess að fá upplýsingar um námskeiðið fyrst!
Dagskrá námskeiðsins er birt með fyrirvara um breytingar. Hún tekur ávallt mið af veður- og snjóaðstæðum. Markmiðið er að nýta aðstæður til fulls.
Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið (nánari staðsetningar verða auglýstar síðar).
Nánari dagskrá verður birt innan skamms.
Fyrri reynsla er ekki nauðsynleg. Reynsla af reipavinnu og klettaklifri er kostur.
Líkamlegt form: Þátttakendur skulu vera í sæmilegu gönguformi.
Klifurbelti
Broddar og ísaxir (hægt að fá lánað)
Snjóflóðaþrenning (snjóflóðaýlir, skófla og stöng) – mælt er með að snjóflóðabúnaður sé yngri en 5–10 ára.
Stífir klifur- eða gönguskór
Bakpoki
Klifurhjálmur
Vatnsheldur skeljakki og skelbuxur
Hlýr einangraður jakki
Hlýir hanskar og þunnir hanskar
Húfa
Matur fyrir daginn
