Öræfaskólinn
13.-16. ágúst
20.000 kr.
20.000 kr.
Ert þú á aldrinum 18-25 ára? Langar þig að auka þekkingu þína á áhrifum loftslagsbreytinga á íslenska náttúru og jökla? Vilt þú fræðast um jökla og hvaða rannsóknir eru gerðar? Langar þig að kynnast jöklaferðamennsku?
Öræfi bjóða upp á lifandi kennslustofu umhverfis- og loftslagsbreytinga. Samspil elds og íss er óvíða jafn sýnilegt og í Öræfum sem og rýrnun jökla og tilheyrandi breytingar á landslagi.
Það má segja að Öræfi séu vagga íslenskrar fjallamennsku enda stórbrotið fjalllendi hvert sem litið er. Háir tindar Öræfajökuls hafa lengi kallað fjallafólk til sín, klettaklifur á Íslandi á rætur sínar að rekja við rætur Öræfajökuls og jöklaferðamennska er stór hluti af menningu Öræfinga. Skriðjöklar skríða niður á láglendi og aðgengið auðvelt enda eru þeir steinsnar frá þjóðvegi 1.
Öræfaskólinn er helgarnámskeið fyrir ungt fólk sem Fjallaskóli Íslands býður upp á í samstarfi við Jöklarannsóknafélag Íslands.
Verkefnið Öræfaskólinn hefur verið haldið tvisvar áður, sumrin 2019 og 2022 en kennarar Fjallaskóla Íslands, Erla, Íris og Svanhvít stóðu að verkefninu. Nýverið hlaut námskeiðið styrk úr Kvískerjasjóði og er hugmyndin að bjóða ungu fólki tækifæri til þess að kynnast fjallamennsku í Öræfum og hvað aðferðir eru notaðar til þess að fylgjast með breytingum á jöklum.
Markmið Öræfaskólans eru:
- Að stuðla að auknu aðgengi ungmenna að vettvangsmiðaðri fræðslu um loftslags- og jöklabreytingar
- Að kynna fjölbreytta útivistarmöguleika og starfsvettvang sem tengist jöklum
- Að hvetja til náms í náttúru- og loftslagsvísindum
Leiðbeinendur á námskeiðinu eru reynslumiklir kennarar, fjalla- og jöklaleiðsögumenn sem starfa hjá Fjallaskóla Íslands.
Hrafnhildur Hannesdóttir og Kieran Baxter munu segja frá verkefninu Jöklasýn sem gengur út á að ljósmynda jökla frá skilgreindum stöðum og er markmið verkefnisins er að safna ljósmyndum í aðgengilegan gagnabanka um breytingar á íslenskum jöklum næstu 100 árin.
Fjallakennarar frá Fjallaskóla Íslands: Erla Guðný Helgadóttir, Svanhvít Helga Jóhannsdóttir og Íris Ragnarsdóttir Pedersen
Jöklarannsóknafélag Íslands: Hrafnhildur Hannesdóttir og Kieran Baxter
Fyrir hvern er þetta námskeið?
Námskeiðið er fyrir öll 18-25 ára sem hafa brennandi áhuga á útivist og náttúru Íslands. Það er fyrir þau sem vilja kynnast landinu á nýjan hátt, opna á heim jökla, útivistar og fjallamennsku. Námskeiðið hentar einnig þeim sem hafa áhuga á, eða stunda nám í náttúru- og loftslagsvísindum og hafa áhuga á að læra um þátttöku almennings í vísindum.
Birt með fyrirvara um breytingar!
Staðsetning: Öræfi. Gist á tjaldsvæðinu í Skaftafelli.
13. ágúst Fimmtudagur: Hist er seinnipartinn í Skaftafelli þar sem gist er við samkomutjaldið. Fræðsluganga frá tjaldsvæðinu að Skaftafellsjökli eða stutt kvöldganga á jökul eftir mat. Sameiginlegur kvöldverður í boði.
14. ágúst Föstudagur: Ganga og uppsetning á myndavélastatífi sem horfir yfir jökul svo hægt sé að mynda jöklabreytingar yfir lengri tíma. Fræðsla. Nánari dagskrá fyrir þennan dag kemur þegar nær dregur.
15. ágúst Laugardagur: Löng jöklaganga, fjallganga, fræðsla og gist í tjöldum í óbyggðum.
16. ágúst Sunnudagur: Gengið til baka, jöklaganga eða kajakferð á jökullóni áður en dagskránni lýkur seinnipartinn.
Aldurstakmark: Þátttakendur skulu vera á aldrinum 18-25 ára.
Líkamlegt form: Eðli ferðanna samkvæmt skulu þátttakendur vera í ágætis gönguformi. Athugið að fjllamennskureynsla er ekki nauðsynleg! Gera má ráð fyrir 5-6 klst. göngu amk. einn daganna.
Tjald: Vilji til þess að gista í tjaldi. Þátttakendur eru beðnir um að hafa samband ef vantar útilegubúnað. Jöklabúnaður er innifalinn.
búnaður
- 30-50 L Bakpoki fyrir daggöngur og tjaldgöngu
- Göngustafir (ekki nauðsynlegt en gagnlegt fyrir lengri gönguna)
- Tjald (hópurinn kemur sér saman um fjölda tjalda sem þarf í gönguna)
- Svefnpoki
- Tjalddýna
- Eldunarbúnaður og gas
- Lítil skál/bolli + ferðaskeið/gaffall
- Vatnsflaska (1-2 L)
- Sólgleraugu og sólarvörn
- Hlý úlpa
Fatnaður ofl.
- Vatnsheld föt (goretex eða sambærilegt, buxur og jakki)
- Millilag: Mjúkskel, buxur og jakki (eða íþróttaföt, ekki bómull)
- Ullarnærföt
- Gönguskór (ökklaháir)
- Fingravettlingar og hlýrri hanskar
- Húfa sem kemst undir hjálm
- Buff
- Persónuleg snyrtitaska, lyf osfrv.
Tæknilegur jöklabúnaður er innifalinn en ef þáttakendur eiga sinn eigin búnað (hjálm, belti, brodda, ísexi) má endilega koma með það.
Hafið samband ef þið hafið ekki aðgang að einhverju ofantöldu og það verður greitt úr því.
Innifalið í verði er:
- 3.5 daga leiðsögn um jökla og fjöll Öræfa
- Þátttaka í uppsetningu búnaðar og framlagi til jöklavísinda með Jöklarannsóknafélagi Íslands
- Jöklaferðir, ísklifur og fjallgöngur um fjalllendi og hina ýmsu jökla Öræfa
- Gisting á tjaldsvæðinu í Skaftafelli
- Sameiginlegur kvöldverður
- Fræðsla um loftslagsmál og náttúruna, kynning á Vatnajökulsþjóðgarði
Verð: 20.000 kr.
Athugið að stéttarfélög greiða oft fyrir slík námskeið. Hafið samband ef þátttökugjaldið kemur í veg fyrir þátttöku og fæst ekki greitt af stéttarfélagi.
Skráning
Vinsamlegast fyllið inn alla reitin svo skráningin teljist gild. Athugið að frekari upplýsingar um námskeiðið berast í tölvupósti þegar nær dregur.
