Skriðjöklanámskeið

Dagsetningar óákveðnar
75.000 kr.

Námskeiðið skriðjöklagrunnur er frábær leið til að hefja vegferð þína í jöklaferðamennsku!  Vertu með okkur í þrjá daga þar sem við heimsækjum fjölbreytta skriðjökla í Öræfum og lærum grunn atriðin í öruggri jöklaferðamennsku. Þetta er yfirgripsmikið námskeið sem krefst engrar fyrri reynslu.  

Á Íslandi búum við svo vel að geta heimsótt skriðjökla mjög auðveldlega. Skriðjöklar ná niður á láglendi og eru ævintýraveröld sem fleiri ættu að fá að kynnast. Með námskeiðinu  fá þátttakendur skilning á öryggisatriðum og ferðalögum á skriðjöklum og þeim hættum sem fylgja þeim. Þátttakendur öðlast einnig betri skilning á jöklum, loftslagsbreytingum og áskorununum sem þær eru.  

Námskeiðið miðar að því að þjálfa þátttakendur í að ferðast á öruggan hátt um  fjölbreytt  landslag á skriðjökli og framkvæma einfalda sprungubjörgun.  

Á námskeiðinu  verður meðal annars farið yfir: 
  • Notkun nauðsynlegs öryggisbúnaðar í jöklaferðum 
  • Línuklifur og sig 
  • Sprungubjörgun 
  • Leiðarval á skriðjöklum 
  • Mat á hættum á skriðjöklum 
  • Göngutækni á broddum 
  • Ísklifur  í ofanvaði 
Fyrir hverja er þetta námskeið? 

Námskeiðið er fyrir öll sem elska útivist og langar að opna á fleiri tækifæri. Námskeiðið hentar einnig vel sem undirbúningur fyrir þau sem vilja stefna á jöklaleiðsögn og stefna á að taka námskeiðið Jöklaleiðsögn 1 frá AIMG (Félagi Fjallaleiðsögumanna á Ísland).  

Leiðbeinendur á námskeiðinu eru reynslumiklir kennarar og jöklaleiðsögumenn sem starfa hjá Fjallaskóla Íslands. Kennararnir eru allir leiðbeinendur á skriðjöklanámskeiðum AIMG.   

Staðsetning: Öræfi (nánari staðsetningar verða auglýstar síðar). Varðandi staðsetningar þá ákveðum við hvaða jökla við förum á út frá veðri og landslagi sem hentar hverju sinni. Líklegir jöklar eru Svínafellsjökull, Falljökull, Virkisjökull og/eða Kvíárjökull.

Dagur 1: Námskeið hefst á kl. 09:00 í Hofgarði. Byrjað er inni á stuttum fyrirlestri og yfirferð á jöklaferðamennsku áður en farið er út á jökul eftir hádegi.

Dagur 2: Farið í lengri jöklagöngu þar sem farið verður yfir landslagslestur, leiðarval, sprungubjörgun og ísklifur.

Dagur 3: Farið í lengri jöklagöngu þar sem farið verður yfir landslagslestur, leiðarval, sprungubjörgun og ísklifur.

Líkamlegt form: Þátttakendur skulu vera í sæmilegu fjallgönguformi.

Tæknilegur búnaður 
  • Broddar (12 punkta jöklabroddar) 
  • Göngu ísöxi 
  • Klifurbelti  
  • Hjálmur (klifurhjálmur) 
  • 40 metra lína, t.d. 9 mm.  
  • 2×5 metra  prússikbönd –  6 eða 7 mm  
  • 120 eða 180 cm  slingur 
  • 8 læstar  karabínur 
  • Sigtól með möguleika á einstefnuloka 
  • 2 ísskrúfur 19 eða 21 cm að lengd 
  • 30-40 L bakpoki með festingar fyrir ísaxir 
    Persónulegur búnaður 
    • Hlý úlpa 
    • Vatnsheld föt (goretex eða sambærilegt, buxur og jakki) 
    • Mjúkskel, buxur og jakki (eða íþróttaföt, ekki bómull) 
    • Ullarnærföt 
    • Millistífir eða alstífir gönguskór 
    • Fingravettlingar, t.d. garðvinnuvettlingar og þykkari fingravettlingar 
    • Húfa sem kemst undir hjálm (ekki með dúsk eða mjög stór) 
    • Sólgleraugu 
    • Sólarvörn 
    • Buff 
    • Vatnsflaska (1 L) 
    • Persónuleg lyf 

    Skráning

    Vinsamlegast fyllið inn alla reitin svo skráningin teljist gild. Athugið að frekari upplýsingar um námskeiðið berast í tölvupósti þegar nær dregur.

    Til þess að senda kröfu á heimabanka.
    Hefurðu reynslu á klifri? ef svo er, hvaða? (ath. reynsla er ekki nauðsynleg) / Do you have climbing experience? if so, what? it is not essential to have experience.
    reCAPTCHA is required.