Klettaklifur

22.-23. maí
75.000 kr.

Staðsetning óákveðin: Líklegast á SV-horninu eða á Suðausturlandi

Kostnaður: 75.000 kr.

Þetta helgarnámskeið er ætlað hverjum þeim sem vill auka færni og öryggi í klettaklifri.

Námskeiðið hentar byrjendum í útiklifri og þeim sem hafa stundað klifur inni og eru að taka sín fyrstu skref í útiklifri. 

Farið verður yfir helstu hnúta, notkun tryggingartóla, klifurbúnaðar, hvernig þræða á akkeri og setja upp klifur í ofanvað.

Leiðbeinendur á námskeiðinu veita tilsögn oí klifurtækni fyrir hvern og einn. 

Farið verður yfir:

  • Klifurtækni 
  • Öruggar tryggingar 
  • Kynning á búnaði og notkun hans 
  • Grunn í línuvinnu 
  • Akkerasmíði
  • Sportklifurgrunnur 
  • Reglur í klifri og öryggishugsun 

Dagur 1: Námskeiðið byrjar á kynningu á klifurbúnaði og notkun hans, og kennslu í klifri. Áhersla er lögð á öryggi, grunntækni og sjálfsöryggi á klettinum. Nóg af klifri: 

  • Kynning á klifurbúnaði og réttri notkun hans

  • Hnútabindingar

  • Grunnhreyfingar og klifurtækni

  • Grunnatriði í tryggingum og samskipti milli klifurfélaga

  • Klifuræfingar undir leiðsögn og eftirliti

Dagur 2: Á öðrum degi byggja þátttakendur ofan á þá færni sem þeir öðluðust á fyrsta degi og kynnast flóknari klifurtækni, með áherslu á að efla sjálfstæði þeirra í klifrinu. Meðal þess sem farið verður yfir er:

  • Grunnatriði í sportklifri

  • Tryggingar í sportklifri

  • Akkerissmíð

  • Klifur og þróun færni!

Námskeiðið hentar bæði byrjendum sem hafa enga reynslu af klifri og þeim sem hafa einhverja klifurreynslu en vilja styrkja grunn sinn í klettaklifri utandyra.

  • Matur og drykkir fyrir daginn

  • Fatnaður fyrir öll veður

  • Þægilegar klifurbuxur 

  • Hlý peysa eða aukalag þegar ekki er verið að klifra eða ef kólnar

  • Vatnsheldur jakki og buxur

  • Klifurskór

  • Klifurhjálmur

  • Klifurbelti

  • Kalkpoki

  • Einn læsanlegur karabína

  • Tryggingatól (ATC, GriGri eða sambærilegt…)

Skráning

Vinsamlegast fyllið inn alla reitina svo skráningin teljist gild. Athugið að frekari upplýsingar um námskeiðið berast í tölvupósti þegar nær dregur.

Til þess að senda kröfu á heimabanka.
Hefurðu reynslu á klifri? ef svo er, hvaða? (ath. reynsla er ekki nauðsynleg) / Do you have climbing experience? if so, what? it is not essential to have experience.