Leiðsögumaður með áherslu á Fjallgönguleiðsögn

60 eininga framhaldsnám í fjallamennsku

Opið fyrir umsóknir skólaárið 2026-2027 út 31. apríl

Annað árið við Fjallaskóla Íslands er námsleiðin leiðsögumaður með áherslu á fjallgönguleiðsögn. Námið 60 eininga sérhæft nám í fjallamennsku og leiðsögn á hájöklum og víðar og fer fram yfir tvær annir.

Námið er ætlað sem framhald af námsleiðinni leiðsögumaður með áherslu á jöklaleiðsögn og er ætlað að dýpka þekkingu nemenda frá fyrra árinu. Lögð er áhersla á öryggi og að nemendur öðlist færni til þess að leiða fólk um fjöll á öruggan hátt.

Hluti af náminu eru krefjandi réttindanámskeið í bland við almenn námskeið í leiðsögn á vegum skólans. 

Námið er kennt á tveimur önnum og samanstendur af verklegum vettvangsáföngum, sem eru 4-7 dagar í senn og bóklegu fjarnámi.  

Námið veitir nemendum réttindi innan Félags fjallaleiðsögumanna á Íslandi (AIMG). Nemendur ljúka AIMG fjallgönguleiðsögn 1 og einnig geta nemendur tekið valáfangan AIMG jöklaleiðsögn 2 (ekki skylduáfangi). Einnig fara nemendur á námskeiðið Vettvangs hjálp í óbyggðum (e.Wilderness first responder). Auk námskeiða í fjallamennsku, klifri, snjóflóðafræðum, vetrarferðamennsku, fjallaskíðamennsku, hájöklaferðamennsku og fleiru.

Í flestum vettvangsferðum skólans er lagt upp með það að nemendur gisti í tjöldum. Innifalið í skólagjöldunum er aðgangur að tjöldum sem notast er við í sumum ferðum. Í einstaka tilfellum þurfa nemendur að bóka gistingu inni og greiða fyrir það sjálfir.

Vettvangsáfangar í náminu eru 14, af þeim eru fjórir val- áfangar þar sem nemendur velja tvo af fjórum áföngum. Vettvangsáfangar eru kenndir úti í náttúru Íslands á 4 – 7 dögum. Eftir eðli áfanganna sem og árstíma, er gist í tjöldum eða í gistingu sem nemendur sjá um að skipuleggja sjálfir.

Réttindanámskeið eru: 

  • AIMG Fjallgönguleiðsögn 1
  • Vettvangshjálp í Óbyggðum (Landsbjörg) 
  • nemendum stendur einnig til boða að taka AIMG Jöklaleiðsögn 2 
  • Landvarðaréttindi frá Náttúruverndarstofnun 
Önnur verkleg námskeið eru:
  • Hájöklaferðamennska 2
  • Leiðangur yfir Vatnajökul
  • Ísklifur
  • Fjallaskíðamennska 2 
  • Snjóflóðafræði og leiðsögn (framhaldsnámskeið) 
  • Framhaldsnámskeið í klettaklifri 
  • Skiptinám erlendis
 

Bóklegir áfangar eru kenndir í fjarnámi samhliða verklegu námi.

Bóklegir áfangar eru:

  • Hagnýt náttúrufræði og náttúrutúlkun
  • Fjallaferðir á Hájöklum
  • Skipulag leiðangra

Kostnaður við námið er 400.000 kr. á önn //  800.000 kr. fyrir árið. 
Ef sótt er um hálft nám greiðast 240.000 kr. fyrir hverja önn.

Námið er lánshæft.
Nemendur greiða sjálfir fyrir ferðakostnað, gistingu og uppihald á meðan á námskeiðum stendur.

Nemendur þurfa einnig að eiga persónulegan búnað og ef nemendur eiga ekki þann búnað sem ætlast er til að þeir eigi getur verið auka kostnaður fyrir nemendur að koma sér upp búnaði, sjá meira um það undir búnaður hér á síðunni.

Skilyrði fyrir því að hefja nám í leiðsögn með áherslu á fjallgönguleiðsögn:

  • Að hafa lokið námskeiðinni leiðsögumaður með áherslu á jöklaleiðsögn.
  • Að hafa lokið stúdentsprófi, sveinsprófi eða öðru sambærilegu námi. Próf í frumgreinadeildum háskóla teljast sambærileg stúdentsprófi. Umsækjendur sem náð hafa 18 ára aldri og eru án formlegrar menntunar en hafa starfað í ferðaþjónustu við fjallamennsku geta óskað eftir undanþágu frá inntökuskilyrðum.

Að auki þarf nemandi:

  • Að geta stundað nám í krefjandi aðstæðum og landslagi
  • Að vera í góðu líkamlegu formi

Nemendur þurfa að eiga persónulegan búnað og lista yfir þann búnað er hægt að finna hér á síðunni undir „Búnaður“. Skólinn útvegar tæknilegan búnað, svo sem tjöld, jökla- og klifurbúnað. Nemendur er þó hvattir til að kaupa persónulegan sérhæfðan búnað meðan á námi stendur.