Búnaðarlisti Fjallaskóla Íslands
Nemendur þurfa að eiga persónlegan búnað og lista yfir þann búnað er hægt að finna hér fyrir neðan.
Skólinn skaffar tæknilegan búnað, svo sem tjöld, jökla og klifurbúnað, fjallahjól og kayaka svo eitthvað sé nefnt.
Þessi listi hér að neðan tekur mið af öllum ferðum sem farnar eru í Fjallaskóla Íslands og því passar sumt við ákveðnar ferðir meðan annað passar fyrir allar.
Nánari listi er birtur fyrir hvern áfanga í upphafi annar.
Innsta lag – Langermabolur og síðbrók úr ull eða gerviefnum (ekki bómull)
Millilag – Úr ull, flís eða sambærilegu efni (ekki bómull)
Göngu – eða flísbuxur (ekki galla- eða bómullarbuxur)
Ysta lag – stakkur og buxur úr vatns- og vindheldu öndunarefni, Gore-tex eða sambærilegt.
Primaloft eða dúnbuxur sem komast yfir skel geta verið kostur ef kalt er í veðri.
Góð húfa sem kemst undir hjálm, ullarbuff/lambhúshetta og buff.
Vettlingar, bæði þunnir og þykkir. Vatnsheldir vettlingar eru kostur.
Vinnuvettlingar með góðu gripi sem henta vel í línuvinnu.
2 pör af göngu- og eða ullarsokkar með minnst 50% ull
Hlýr auka jakki (eða þykk flís- eða lopapeysa) til að hafa í bakpokanum. Á haustin og veturna henta þunnar primaloft- eða dúnúlpur vel, en í vetrarferðum getur létt þykkri dúnúlpa hentað betur.
Góðir gönguskór eru nauðsynlegir. Millistífir/hálfstífir gönguskór henta í lang flestar ferðir. Þeir þurfa að vera vatnsheldir, með grófum sóla og góðum ökklastuðningi. Alstífir gönguskór eru góðir í ísklifur og ferðir þar sem er kalt, s.s. í hájöklaferð.
Legghlífar eru góðar þegar gengið er í djúpum snjó.
Bakpoki 45 L gengur í flestar ferðir, þó getur verið gott að hafa aðgang að öðrum stærri bakpoka fyrir lengri ferðir, um 60 L.
Svefnpoki úr dún, comfort -15°C
Þunn, einangrandi 4 árstíða dýna (göngudýna). Skoðið R-value
Áfyllanleg vatnsflaska 1 L, helst með stóru opi, t.d. Nalgine.
Diskur/skál/skeið/bolli, létt og úr plasti
Hitabrúsi, kemur sér vel á köldum dögum.
Prímus
Höfuðljós
Vasahnífur
Áttaviti
Hleðslubanki
Farsími
Persónlegt sjúkra-kit
Göngustafir
Sólgleraugu með góðri UV vörn
Tæknilegur búnaður (hægt að fá að láni hjá skólanum):
Klifurbelti með vinnulykkjum
Klifurhjálmur
Klifurskór + kalkpoki
Prússik, 1×3-5 metrar, 1x 2 metrar
Sling, 180 cm
6 læstar karabínur
2 ólæstar karabínur
Sigtól með möguleika á einsefnuloka, t.d. ATC guide
Micro traxion eða sambærilegt
Ísskrúfur, 1x 21 cm, 1x 16 cm
Ísöxi
Broddar
4 árstíða tjald
Salernispappír (eldfæri, litlir plastpokar)
Handspritt/sótthreinsigel
Tannbursti
Tannkrem – lítil eining
Lítið handklæði / þvottapoki
Hælsærisplástur / plástur
Skæri (eru oft í vasahnífum)
Verkjalyf
Varasalvi
Sólarvörn
Eyrnatappar geta verið kostur ef tjaldfélaginn hrýtur eða ef það er mikið rok
Fjallabókin eftir Jón Gauta Jónsson
Gul vatnsheld vasabók frá rite in the rain n°311
Staðgóður kvöldmatur / sameiginleg innkaup matar/tjaldhóps.
Súkkulaði, hnetur, þurrkaðir ávextir, orkustykki o.fl.
Flatkökur (smurðar, orkuríkt álegg)
Þétt brauð (smurt, orkuríkt álegg)
Hrökkbrauð
Kex
Þurrdjús /orkudrykkur
Kakóbréf
Te / kaffi
Eldfæri
Myndavél / rafhlöður
Skóreimar
Loggbókin (þessi vatnshelda, er gul að lit frá rite in the rain)
Kort
Vatnsheldir pokar eða plastpokar fyrir síma og annað sem ekki má blotna í rigningu.
