Vettvangshjálp í óbyggðum

12.-15. og 21.-24. október 2026 // Hótel Skaftafelli
215.000 kr.

Starfar þú í óbyggðum?

Fjallaskóli Íslands í samstarfi við  Björgunarskóla Landsbjargar og Félag Fjallaleiðsögumanna á Íslandi bjóða upp á námskeiðið:   Vettvangshjálp í Óbyggðum (Wilderness First Responder).

ATH. Námskeiðið er   kennt á ensku
Staðsetning: Öræfi/Skaftafell
Tími:   Námskeiðið er kennt í tveimur lotum. Fyrri lotan er 12.–15. október og sú síðari 21.–24. október.
Verð: 215.000 kr.
 
Um er að ræða 76 klst. námskeið í sérhæfðri vettvangshjálp. Námskeiðið er ætlað þeim sem starfa fjarri almennri bráðaþjónustu og gætu verið í þeirri aðstöðu að bera ábyrgð á hópi eða sjúklingi. Námskeiðið hentar sérstaklega leiðsögumönnum sem starfa við að leiða hópa í óbyggðum. Þátttakendur læra að meta áverka og ástand sjúklinga úti í mörkinni, hvaða meðferð má beita og hvernig má fyrirbyggja óhöpp á fjöllum.   Nemendur læra að nota viðeigandi sjúkrabúnað en einnig að nýta það sem fyrir hendi er í óbyggðaferðum. Nemendur sem lokið hafa námskeiðinu eiga að vera tilbúnir til að vera sérfræðingar í fyrstu hjálp innan síns hóps, hvort sem um björgunaraðgerð er að ræða eða í ferðalögum í óbyggðum.
 
Þeir sem ljúka námskeiðinu fá réttindi til að beita sex vinnureglum sem Landlæknisembættið hefur samþykkt. Þá eru nemendur einnig viðurkenndir sem vettvangshjálparliðar (First Responders). Þessi réttindi gilda í 3 ár og nemandi þarf að mæta á endurmenntunarnámskeið áður en sá tími er liðinn.
 
 
Námsgögn
Við upphaf námskeiðsins fá nemendur bókina Wilderness and Rescue Medicine, verkefnabók, Wilderness Field Guide og SAGA-Skráning. Nemendur þurfa sjálfir að koma með ritföng, en einnig er heimilt að vera með far- eða spjaldtölvu til að glósa í. Nemendur þurfa einnig að geta verið utandyra í verklegri kennslu, þ.á.m. við æfingar í myrkri. Eins þurfa nemendur að gera ráð fyrir því að þeir leiki sjúklinga í æfingum og þurfa þá að hafa með sér fatnað til þess sem má skemmast.
 

Kennsla:
Kennt er frá kl. 08:00-18:00 alla daga. 

Námsefnið er kennt með fyrirlestrum og verklegri kennslu í formi sýnikennslu og athafnanáms . Haldnar eru tilfellaæfingar þar sem nemendur þjálfast í að greina vandamál og að bregðast rétt við þeim. Um helmingur kennslunnar fer fram utandyra. Að hámarki eru tíu nemendur á hvern leiðbeinanda. Leiðbeinendur sem kenna á WFR – Vettvangshjálp í óbyggðum þurfa að hafa lokið leiðbeinendanámskeiði í fyrstu hjálp og vera að auki með leiðbeinanda réttindi frá Wilderness Medical Associates.

Mat
Námskeiðinu lýkur með skriflegu og verklegu prófi. Til að útskrifast þurfa nemendur að ná einkuninni 8,0. Þá er einnig horft til þess hvort nemandinn hafi verið virkur þátttakandi á námskeiðinu og frammistöðu í verklegum æfingum en símat er stöðugt í gangi.

Björgunarskólinn setur ekki neinar forkröfur fyrir WFR – Vettvangshjálp í óbyggðum. Gott er ef nemendur sem ætla á WFR hafi lokið Fyrstu hjálp 1 og Fyrstu hjálp 2.

Skráning

Sendið póst á smari@fjallanam.is til þess að tryggja ykkur pláss á námskeiðinu.  Það eru örfá pláss eftir.