Vettvangshjálp í óbyggðum
12.-15. og 21.-24. október 2026 // Hótel Skaftafelli
215.000 kr.
Starfar þú í óbyggðum?
Fjallaskóli Íslands í samstarfi við Björgunarskóla Landsbjargar og Félag Fjallaleiðsögumanna á Íslandi bjóða upp á námskeiðið: Vettvangshjálp í Óbyggðum (Wilderness First Responder).
Staðsetning: Öræfi/Skaftafell
Kennsla:
Kennt er frá kl. 08:00-18:00 alla daga.
Námsefnið er kennt með fyrirlestrum og verklegri kennslu í formi sýnikennslu og athafnanáms . Haldnar eru tilfellaæfingar þar sem nemendur þjálfast í að greina vandamál og að bregðast rétt við þeim. Um helmingur kennslunnar fer fram utandyra. Að hámarki eru tíu nemendur á hvern leiðbeinanda. Leiðbeinendur sem kenna á WFR – Vettvangshjálp í óbyggðum þurfa að hafa lokið leiðbeinendanámskeiði í fyrstu hjálp og vera að auki með leiðbeinanda réttindi frá Wilderness Medical Associates.
Mat
Námskeiðinu lýkur með skriflegu og verklegu prófi. Til að útskrifast þurfa nemendur að ná einkuninni 8,0. Þá er einnig horft til þess hvort nemandinn hafi verið virkur þátttakandi á námskeiðinu og frammistöðu í verklegum æfingum en símat er stöðugt í gangi.
Skráning
Sendið póst á smari@fjallanam.is til þess að tryggja ykkur pláss á námskeiðinu. Það eru örfá pláss eftir.
