Ísklifur 2027

16.-17.janúar
99.000 kr.

Ísklifurnámskeiðið okkar er helgarnámskeið fyrir þau sem vilja kynnast ísklifri, læra að stunda íþróttina með öryggi að leiðarljósi og fá leiðbeiningar um hvernig best sé að byrja.

Á námskeiðinu verður lögð áhersla á klifurtækni, línuvinnu og tryggingar og margt fleira.

Skráðu þig til þess að fá upplýsingar um námskeiðið fyrst!

Kennari: Ívar Finnbogason

Dagskrá námskeiðsins er birt með fyrirvara um breytingar. Hún tekur ávallt mið af veður- og snjóaðstæðum. Markmiðið er að nýta aðstæður til fulls.

Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið (nánari staðsetningar verða auglýstar síðar).

Nánari dagskrá verður birt innan skamms.

Fyrri reynsla er ekki nauðsynleg. Reynsla af reipavinnu og klettaklifri er kostur.

Líkamlegt form: Þátttakendur skulu vera í sæmilegu gönguformi.

Mikilvægt er að mæta vel búinn á námskeiðið. Þátttakendur þurfa að hafa eftirfarandi búnað meðferðis:
  • Klifurbelti

  • Broddar og ísaxir (hægt að fá lánað)

  • Snjóflóðaþrenning (snjóflóðaýlir, skófla og stöng) – mælt er með að snjóflóðabúnaður sé yngri en 5–10 ára.

  • Stífir klifur- eða gönguskór

  • Bakpoki

  • Klifurhjálmur

  • Vatnsheldur skeljakki og skelbuxur

  • Hlýr einangraður jakki

  • Hlýir hanskar og þunnir hanskar

  • Húfa

  • Matur fyrir daginn

Skráning

Vinsamlegast fyllið inn alla reitin svo skráningin teljist gild. Athugið að frekari upplýsingar um námskeiðið berast í tölvupósti þegar nær dregur.
Til þess að senda kröfu á heimabanka.
reCAPTCHA is required.