Rötun og útivist haust 2025

Annar áfangi haustsins hjá Fjallaskóla Íslands fór fram í september en það var Rötun og útivist. Þar læra nemendur rötun, bæði með pappírskortum og áttavita og með rötunarforritum í snjallsíma. Í áfanganum er einnig áhersla á tjaldlíf og að geta hugsað um sig og liðið vel í nokkurra daga gönguferð með allt á bakinu. Framsaga, teymisvinna og leiðtogahæfni eru önnur áhersluatriði í áfanganum en þessi áfangi byggir grunn undir næstu áfanga í náminu þar sem ferðast er saman í krefjandi aðstæðum.

Ætlunin var að ganga stóran hring um heiðarnar norðan Lómagnúps, upp að Hvítárvatni og finna laugina í Beinadal. Vegna mikillar úrkomuspár breyttum við ferðaplaninu og gengum í tvo daga á upprunalegu svæði og færðum okkur síðan á svæðið við Núpsstaðaskóg. Þar tjölduðum við og fengum að nýta skála Íslenskra Fjallaleiðsögumanna sem kennslustofu á mesta rigningardeginum og þökkum Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum stuðninginn við skólann! Þaðan gengum við svo upp Súlnadal, kíktum á Súlu í Skarðatindum og tjölduðum við Skessutorfugljúfur.

Á síðasta degi áfangans var farið yfir þverun straumvatna og Morsá vaðin að því tilefni.

Nemendur létu rigningarveður sem einkenndi áfangann ekki mikið á sig fá, heldur var iðulega stutt í glens og gaman. Kennarar þakka fyrir ánæglulega samveru á fjöllum!