Dagana 17.-23. febrúar var snjóflóðanámskeið Fjallaskóla Íslands enn og aftur haldið á Dalvík, Tröllaskaga. Námskeiðið fer um víðan völl og mikið efni tekið fyrir á þessum fimm dögum og fer það fram í inni-lotum í bland við útiæfingar og skíðakennslu. Þar sem námskeiðið snýst einnig um skíðamennsku, þá eru allir veðurgluggar nýttir til skíðamennsku og skíðasvæðin umhverfis Tröllaskaga heimsótt.
Á fyrsta degi var skíðað í Böggvisstaðafjalli, Dalvík og þann daginn var yndisleg lausamjöll í brautinni. Byrjendur fengu skíðakennslu, lengra komnir fengu æfingar og tilsögn og stækkandi hópur brettakappa hjálpaðist að í tækniæfingum. Á öðrum degi var skíðað á Siglufirði eftir snjóflóðabjörgunaræfingar. Enn var nýr snjór utan brauta og fengu þeir sem vildu að spreyta sig í utanbrautatækni. Þriðji og síðasti skíðadagur námskeiðsins fór fram í Hlíðarfjalli en hópurinn skíðaði heilan dag með snjóathugana- og gryfjuæfingum um miðjan dag. Þennan daginn var mikil áhersla lögð á utanbrautaskíðamennsku enda er skilyrði fyrir inngöngu í fjallaskíðaáfangann að þátttakendur sýni fram á færni utan brauta og í öllum brekkum innan brauta.
Þetta námskeið er alltaf skekmmtilegt og lifandi og fer hratt yfir snjóflóðafræðin. Nemendur eru allir hvattir til þess að halda áfram að sækja sér menntun og þjálfun í snjóflóðalandslagi, hafi þau hug á að verja tíma á fjöllum í snjó, á skíðum.
Snjóflóðafræðin eru gríðarlega mikilvægur hluti af því að meta áhættu til fjalla að vetrarlagi og nemendur fengu sterkan grunn í landslagslestri, lestri snjóflóða- og veðurspár, áhættumati, félagabjörgun, snjófræðum og undirbúningi ferða í snjóflóðalandslagi.
Næst er val í fjallaskíðamennsku þar sem hluti nemenda byggir ennfrekar á snjóflóðagrunninn á fjallaskíðum.
