Grunnur í fjallaskíðamennsku var sem fyrr haldinn á Tröllaskaga með Dalvík sem meginbækistöð námskeiðsins.
Það hafði bætt nokkuð í snjó frá því á snjóflóðanámskeiðinu en á þeim tíma sem námskeiðið var haldið var þó nokkuð lítill snjór miðað við árstíma og snjólétt á láglendi. Nú hefur það sannarlega breyst eftir lægðagang og snjókomu síðustu vikuna og má búast við að snjóalög fyrir vorskíðamennsku lofi góðu. Við höfðum þó úr nægu að moða og náðum að fara ýmsar klassískar Tröllaskagaferðir á við Múlakollu, Innanverðan Svarfaðardal, Héðinsfjörð og fleira. Þar fengu þau tækifæri til þess að leiða hópinn, æfa landslagslestur og leiðarval, hraðastýringu og hópstjórnun í einföldu fjallaskíðalandslagi.
Snjóalög voru áhugaverð og nemendur gátu spreytt sig á gryfjugerð og snjóathugunum í feltinu og snjóflóðaaðstæður voru metnar úti í feltinu. Hver dagur byrjaði á morgunfundi þar sem kennarar og nemendur kynntu snjó- og veðuraðstæður út frá snjóflóða- og veðurspám en einnig eigin athugunum í feltinu. Veður og snjóaðstæður voru krefjandi yfir námskeiðið en það kom fljótt í ljós að þrátt fyrir að aðstæður væru ekki með besta móti, þá er yfirleitt hægt að fara út og brasa eitthvað!
Nemendur stóðu sig vel á námskeiðinu og við vonum innilega að þau komi út úr því innblásin til enn frekari fjallaskíðamennsku en hugi jafnframt að góðum undirbúningi, skynsamlegu leiðarvali og opnu hugarfari!
Kennarar voru Erla, Smári og Dan.
